13ágúst

Pálmar Henry Brynjarsson

Nu er krúttið okkar komið með nafn, Pálmar Henry var fyrir valinu og er það nafn valið svona út i bláinn, ekki í höfuðið á neinum.
Dagurinn var rosalega fljótur að liða, við vorum að skríða frammúr um 7 leytið og klára að fínpussa allt fyrir veisluna,, baða Pálmar Henry og svoleiðis..
Fórum svo í kirkjuna en skírnin byrjaði kl 13 í Digraneskirkju. Séra Gunnar, betur þekktur sem sterkasti prestur í heimi skírði krúttið okkar. Athöfnin gekk svakalega vel, prinsinn svaf allann tímann og hafði séra Gunnar á orði að hann hafi varla upplifað eins mikla værð yfir barni í skírn hjá sérSaklaus 
Þegar að við komum heim þá fékk hann að súpa og svo svaf hann eins og engill þegar að gestirnir voru.
Dagurinn var í heild sinni alveg frábær, rosalega gott að geta loksins sagt nafnið hans!!!!

Jæja, nenni ekki að skrifa meira..  Buinn að vera erfiður dagur hjá okkur.

Hanna Bára
13. ágúst 2006 klukkan 03:00
Hanna Bára Kristinsdóttir
3 athugasemdir
05ágúst

Ćtti ég ađ blogga á ný???

jæja,, nu þegar ég er í fæðingarorlofi og Brynjar farinn að vinna er ekki mikið sem hægt er að gera.. sá stutti er svo yndslegur að hann sefur bara og sefurHlæjandi þannig eg ætla kannski að drita einhverjum orðum hérna..
Brynjar er í vestmannaeyjum á þjóðhátið í einn dag, þannig við erum ein heima við mæðgin.
Eg er farin að æfa með HK í handboltanum, svaka stuð nema ég þarf bara að vinna í því að komast í form afturSkömmustulegur

Eg veit ekki hvort þetta se eitthvað að virka,, ætla að prufa að save þetta,, sjáum hvað gerist.....

HB
05. ágúst 2006 klukkan 03:39
Hanna Bára Kristinsdóttir
Almennt
1 athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Bloggarar